Gömlu íslensku mánaðarheitin

Tags

,

Mig minnti að ég ætti oftast afmæli á góu. Það er ekki rétt. Ég á oftast afmæli á hörpu. Á skífunni hér að ofan sést hvernig gömlu mánaðaheiti skarast við gregoríanska tímatalið sem við notumst við í dag.

Gömlu íslensku mánaðaheiti eru þessi:

  1. þorri hefst föstudag í 13. viku vetrar (19. – 26. janúar)
  2. góa hefst sunnudag í 18. viku vetrar (18. – 25. febrúar)
  3. einmánuður hefst þriðjudag í 22. viku vetrar (20. – 26. mars)
  4. harpa hefst sumardaginn fyrsta, fimmtudag í 1. viku sumars (19. – 25. apríl)
  5. skerpla hefst laugardag í 5. viku sumars (19. – 25. maí)
  6. sólmánuður hefst mánudag í 9. viku sumars (18. – 24. júní)
  7. heyannir hefjast á sunnudegi 23. – 30. júlí
  8. tvímánuður hefst þriðjudag í 18. viku sumars (22. – 29. ágúst)
  9. haustmánuður hefst fimmtudag í 23. viku sumars (20. – 26. september)
  10. gormánuður hefst fyrsta vetrardag, laugardag í 1. viku vetrar (21. – 28. október)
  11. ýlir hefst mánudag í 5. viku vetrar (20. – 27. nóvember)
  12. mörsugur hefst miðvikudag í 9. viku vetrar (20. – 27. desember)

    Heimild: Árni Björnsson, 1993. Saga daganna. Reykjavík: Mál og menning. / Náttúran.is / Vísindavefur HÍ